Vegna fjölda áskoranna þá hefur verið ákveðið að setja af stað nýja deild, sú deild er hugsuð milli Áhugamannadeildarinnar og Meistaradeildar í hestaíþróttum.
Nýja deildin mun heita 1. deildin í hestaíþróttum og munu keppniskvöldin 2024 fara fram í Samskipahöll. Miðast er við að alla jafna sé keppt daginn eftir mót Áhugamannadeildarinnar.
Í 1. deildinni verður keppt eftir reglum FEIF, þó er horft fram hjá þeim annmarka að öll innanhúsmótin eru haldin á minni velli en gert er ráð fyrir í FEIF reglum. Keppt verður í liða- og einstaklingskeppni. Keppnisgreinarnar verða V1, F1, T1, PP1, T2, P2 og gæðingalist 2. Nýja deildin verður með svipuðu formi og Meistaradeildin hefur verið haldin sl. árin og reynst vel. Miðað er við að 8 lið keppi á tímabilinu og verður fjöldi knapa í hverju liði takmarkaður við fimm aðila og þrír keppa í hverri grein. Riðin verða bæði A og B úrslit, 5 knapar verða í hvorum úrslitum, efsti hestur B úrslita færist ekki upp í A úrslit.
Dagsetningar greina eru eftirfarandi (birt með fyrirvara um breytingar):
- 23. feb V1 Fjórgangur
- 15. mars T2 Slaktaumatölt
- 28. mars Gæðingalist
- 4. apríl F1 Fimmgangur
- 18. apríl T1 Tölt
- 20. apríl PP1 Gæðingaskeið og P2 100 m. skeið
Knapar skulu vera fullgildir meðlimir í hestamannafélagi sem er í Landssambandi hestamannafélaga. Þar sem Landssamband hestamannafélaga er fullgildur aðili að Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ), gilda lög og reglur ÍSÍ er varða íþróttamenn um knapa 1. deildar í hestaíþróttum. Lágmarksaldur knapa í 1. deild er 18 ára, 19 ára á árinu. Önnur skilyrði eru ekki varðandi þátttöku knapa og er þetta því deild sem ætti að henta mjög breiðum hópi.
1. deildin leitar eftir áhugasömum aðilum sem vilja koma að stjórnun deildarinnar, aðilum sem vilja láta til sín taka og aðstoða við að móta nýja deild. Leitað er til áhugasamra aðila óháð því í hvaða hestamannafélagi viðkomandi eru í. Framboð til stjórnar sendast á fyrstadeild@gmail.com
Opið er fyrir umsóknir liða og sendast uppsóknir á fyrstadeild@gmail.com
Hægt er að heyra beint í Garðari Hólm Birgissyni varðandi nánari upplýsingar í síma 899 8811 eða senda tölvupóst á fyrstadeild@gmail.com