Stjörnublikk

Liðsmenn í liði Stjörnublikks eru Þorvarður Friðbjörnsson liðsstjóri, systurnar Elín Hrönn Sigurðardóttir og Katrín Sigurðardóttir, Sanne Van Hezel og Sigurður Halldórsson. Eigandi og bakhjarl liðsins er Finnbogi Geirsson.
Team members of team Stjörnblikk are Þorvarður Friðbjörnsson team leader, the sisters Elín Hrönn Sigurðardóttir and Katrín Sigurðardóttir, Sanne Van Hezel and Sigurður Halldórsson. Owner and sponsor of the team is Finnbogi Geirsson.

Þorvarður Friðbjörnsson

Þorvarður er liðsstjóri, fæddur í Reykjavík og er í Fáki. Hann er búfræðingur frá Hólaskóla og starfar sem smiður í dag. Þorri hefur verið í hestamennsku frá unglingsaldri og smitaðist af hestamennsku á Hafsteinsstöðum í Skagafirði þar sem hann var í sveit. Hann hefur talsverða keppnisreynslu og hefur náð góðum árangri m.a. íslandsmeistari í fjórgangi 2003 og nokkrir Reykjavíkurmeistara titlar.

Þorvarður is the team leader, born in Reykjavík and is in Fákur sportclub. He studied acriculture in Hólar University and works as carpenter today. Þorri has been in horses since teenage and got interested in horses at Hafsteinsstaðir in Skagafjörður where he was helping out at young age. He has quite a lot of competition experience for example Icelandic champion in fourgait in 2003 and Reykjavík champion a few times.

Katrín Sigurðardóttir
Katrín er uppalin á hestabúgarði og hefur verið á hestbaki síðan hún var barn. Hún býr ásamt fjölskyldu sinni á Skeiðvöllum, Suðurlandi ásamt 120 hrossum og er í hestamannafélaginu Geysi. Katrín er með BS í Ferðamálafræði frá HÍ og rekur fyrirtækið Icelandic Horseworld sem er staðsett á Skeiðvöllum. Hún hefur náð góðum árangri síðustu ár í keppni á hrossum sínum Ólínu og Hauki frá Skeiðvöllum.

Katrín is raised up on a horsebreeding farm and has been riding since she was a child. She lives with her family on the farm Skeiðvellir in south of Iceland, home of 120 horses and is in Geysir sportclub . Katrín has BS degree in Tourism and she runs the company Icelandic Horseworld that is located on the farm Skeiðvellir. She has been succesfull in competitions the last years with her horses Ólína and Haukur from Skeiðvellir.

Elín Hrönn Sigurðardóttir

Elín hefur stundað hestamennsku frá unga aldri og keppt mikið í gegnum tíðina. Hún er í hestamannafélaginu Geysir. Í dag starfar hún á leikskóla og sinnir hestamennskunni eftir vinnu. Hún hefur gaman af öllu sem kemur að hestamennkunni og stundar þjálfun og ræktun á Skeiðvöllum.

Elín Hrönn Sigurðardóttir has been involved in horses from a young age and has competed much over the years, and is in Geysir. Today she work´s in a kindergarden and spends her free time in the stable. She likes everything around the horses and trains and breeds her horses at the farm Skeiðvellir.

Sanne Van Hezel
Sanne er fædd og uppalin í Hollandi en flutti til Íslands 2016. Hún hefur unnið á nokkrum hrossaræktarbúum á Íslandi, en hefur síðustu ár unnið í Skálakoti í Vestur-Eyjafjallahreppi sem leiðsögumaður í hestaferðum og við þjálfum hesta, en er nú í fæðingarorlofi. Sanne er í hestmannafélaginu Sindra. Hún hefur náð bestum árangri með Völund frá Skálakoti í fimmgangi og skeiðgreinum.

Sanne is originally from Holland and moved to Iceland in 2016. She has been working on different training stables in Iceland but has been working in Skálakot guiding horseback riding tours and training for the last few years. She is in Sindri sportclub. At the moment she is in maternity leave. She has mostly been successful with her horse Völundur frá Skálakoti in fivegait and pacetest.

Sigurður Halldórsson

Sigurður er fæddur í Reykjavík og er í hestamannafélaginu Spretti. Hann er verkfræðingur að mennt og starfar hjá Terra. Hann hefur alist upp í hestamennsku frá blautu barnsbeini og er hestamennska mikið fjölskyldusport þar sem foreldrar og börn vinna saman. Sigurður hefur talsverða kepnisreynslu og státar meðal annars af nokkrum íslandsmeistartitlum í yngri flokkum og einnig varð hann íslandsmeistari í gæðingaskeiði fullorðinna 2006.

Sigurður was born in Reykjavík and is in Sprettur sportclub. He is an engineer and works for Terra. He has been around horses his whole live and this is a true family sport as his kids and parents all ride together. Siggi has quite some competition experience as he has few Icelandic champion titles as a youngster and an Icelandic champion in adult class in PP1 2006.